Sýningin Náttúrulega opnar í dag kl. 17 í Ekkisens, Bergstaðastræti 25b.
Á sýningunni sýnir Solveig Thoroddsen verk um náttúruna og tengsl manneskjunnar við hana.
Boðið upp á te úr íslenskum villijurtum ásamt léttum rauðum og hvítum veitingum.
Opið verður á sýninguna í framhaldi á eftirfarandi tímum:
Sunnudag 2.september kl. 15-17
Mánudag 3. september kl. 16-18
Þriðjudag 4. september kl. 16-18
Solveig Thoroddsen er Reykvíkingur en hefur ferðast og búið víða á landsbyggðinni. Hún hefur lengst starfað sem grunnskólakennari og nú sem leiðsögumaður. Solveig vinnur í ýmsa miðla og eru umfjöllunarefnin gjarna samskipti manns og náttúru svo og pólitísk samfélagsmál. Hún hefur tekið þátt í samsýningum bæði heima og erlendis og árið 2017 gaf Partus út ljóðabók hennar Blekrými í bókaflokkinum Meðgönguljóð. Solveig lauk B.A. í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2010 og M.A. frá sama skóla árið 2015.