fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fókus

Þetta eru sjö bestu Airbnb íbúðirnar í Reykjavík

Auður Ösp
Föstudaginn 31. ágúst 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn virti ferðavefur Condé Nast Traveler birti á dögunum lista yfir sjö íslensk heimili sem skráð eru á Airbnb sem vert er að skoða nánar. Bæði er um að ræða einbýlishús og minni íbúðir og eru heimilin staðsett víða innan höfuðborgarsvæðisins og utan.Mælir greinarhöfundur sérstaklega með þessum eignum ef að ferðamenn vilja geta fundist þeir vera „heima hjá sér“ á Íslandi. Gestgjafarnir sem um ræðir hafa allir fengið nafnbótina „Superhost“ sem þýðir að þeir eru allir með minnst 4,8 af 5 í einkunnagjöf.

Fyrir stelpuferðina

Greinarhöfundur mælir sérstaklega með þessu húsi fyrir vinkonuhópa. Eignin er á fullkomnum stað í miðbænum, inniheldur fjögur svefnhergi og er á tveimur hæðum. Eignin hentar líka vel fyrir fjölskyldur með börn þar sem henni fylgir bæði rimlarúm og ungbarnastóll.

Ljósmynd/Airbnb

Fyrir alla fjölskylduna

Þetta heimili er tilvalið fyrir stórfjölskyldur að mati greinarhöfundar. Það er staðsett í tuttuga mínútna akstursfjarlægð frá miðborginni og inniheldur allt sem þarf: þvottavél, rimlarúm, barnastól og nóg af bókum og leikföngum fyrir yngri kynslóðina. Gestir geta látið farið vel um sig í heita pottinum og þá skemmir ekki fyrir að Esjan er í einungis 20 mínútna göngufjarlægð.

Ljósmynd/Airbnb

Fyrir Instagrammarann

 Þessi íbúð er sannkallaður fjársjóður fyrir áhrifavalda á Instagram. Hún er innréttuð á skemmtilegan hátt og býður upp á fjölmörg skemmtileg ljósmyndatækifæri. Fyrir þá „Instagrammara“ sem vilja fá frí frá endalausum lækum og kommentum  þá er íbúðin einnig notalegur og hlýlegur griðarstaður.

Ljósmynd/Airbnb

Fyrir þann sem vill ekki ferðast langt

 Þeir sem dvelja hér þurfa varla að eyða stórfé í útsýnisferðir um borgina, þar sem þeim nægir í raun að horfa út um gluggann. Hallgrímskirkja sést út um svefnherbergisgluggann og þegar stigið er út á svalir er hægt að virða fyrir sér útsýni til fjalla. Þá eru allir þekktustu ferðamannastaðirnir innan seilingar, þar sem að íbúðin er staðsett í hjarta borgarinnar.

Ljósmynd/Airbnb

Fyrir þann sem elskar Bláa Lónið

Þeir sem sett hafa stefnuna á Bláa Lónið verða ekki sviknir af þessum notalega sumarbústað sem staðsettur er mitt á milli miðborgarinnar og Lónsins. Að lokinni heimsókn í lónið er síðan hægt að kúra upp við arineld.

Ljósmynd/Airbnb

Fyrir sælkerann

Þetta heimili er draumagististaður þeirra sem elska að elda. Greinarhöfundur lýsir henni sem sérstakri, skrautlegri og skondinni, sem sé ágæt tilbreyting frá þeim fjölmörgu Airbnb íbúðum sem líkjast hótelherbergjum. Fyrir þá sem vilja spara peninga er tilvalið að kaupa inn í matinn í næsta stórmarkaði og nýta eldhúsið sem fylgir íbúðinni, enda má þar finna allt til alls.

Ljósmynd/Airbnb

Fyrir nýliðann

Að lokum mælir greinarhöfundur þessu heimili fyrir þá sem eru að leigja á Airbnb í fyrsta sinn og vita ekki alveg hverju við er að búast. Þeir sem gista hér geta verið fullkomlega öruggir: íbúðin er afar stílhrein og snyrtileg og engir persónulegar munir til staðar.

Ljósmynd/Airbnb
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Skothelt vetrarráð: „Framrúðan mun þiðna miklu hraðar“

Skothelt vetrarráð: „Framrúðan mun þiðna miklu hraðar“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hefur búið á Íslandi í 5 ár en það er eitt sem kemur henni alltaf á óvart

Hefur búið á Íslandi í 5 ár en það er eitt sem kemur henni alltaf á óvart