Pua er fimm vikna gamall Border Collie hvolpur, nefndur eftir svíninu í Disney myndinni Moana. Pua er á tvo bræður og fjórar systur en vegna sérkennis hans hefur hann vakið meiri athygli en flest allir aðrir hvolpar.
„Ég hef verið að rækta hunda í fjórtán ár og ég hef aldrei séð neitt þessu líkt áður,“ sagði Jessica Wheatley eigandi Pua í samtali við Metro.
Sérkenni Pua er nefnilega það að hann fæddist með klofna vör og tvö nef.
„Ég hef verið að vakna á tveggja tíma fresti allan sólarhringinn til þess að gefa honum að drekka úr pela. Ég geri allt fyrir hvolpana mína. Það er mjög mikilvægt fyrir mér að þeir séu heilbrigðir og líði vel.“
Jessica sá strax við fæðingu að nef Pua var öðruvísi en það átti að vera en það var ekki fyrr en nokkru seinna sem hún sá að nef hans var skipt í tvennt.
„Það er skarð í efri kjálka hans og á milli tannana sem eru að vaxa inn á við. Hann er of lítill fyrir aðgerð núna en hann mun þurfa að fara í minniháttar aðgerð þegar hann verður orðinn nógu gamall þar sem fjarlægðar verða nokkrar tennur. Dýralæknarnir sögðust aldrei hafa séð svona áður. Þau sögðust hafa séð skarð í kjálkum en ekki í nefinu. Þetta er ekki mjög algengt.“
Fjölskyldan er ekki viss hvort þau muni halda Pua þar sem þau hafa nú þegar þrjá hunda á heimilinu.
„Við vonum að við finnum eiganda sem mun elska hann en ef við finnum ekki frábært heimili fyrir Pua þá munum við halda honum sjálf. Hvolparnir eru æðislegir og ég elska að rækta hunda og sjá þá fara á ný heimili þar sem ég veit að þeir munu gleðja annað fólk.“