fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Vigfús dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga þroskaskertri stúlku

Óðinn Svan Óðinsson
Föstudaginn 31. ágúst 2018 11:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vigfús Jóhannesson, fyrrverandi bocciaþjálfari á Akureyri hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga þroskaskertri stúlku. Vigfús þjálfaði stúlkuna þegar brotin áttu sér stað. Það er Rúv.is sem greinir frá þessu. 

Forsaga málsins

DV hefur fjallað ítarlega um málið og greindi fyrst frá því að Boccia-heimurinn á Akureyri væri klofinn vegna átaka tveggja boccia klúbba í bænum. Í frétt DV sagði að 16 fyrrverandi liðsmenn Akurs, sem glíma við þroskaskerðingu af einhverju tagi hefðu gengið úr félaginu yfir í nýtt ósamþykkt félag sem heitir BFA sem stendur fyrir Bocciafélag Akureyrar. Í frétt DV sagði enn fremur að málið væri sérstakt og mætti rekja til þess að Vigfús Jóhannesson fyrrverandi formaður Akurs hefði ákveðið að stíga til hliðar eftir að skjólstæðingur hans kærði hann fyrir alvarlegt kynferðisbrot.

Í viðtali við DV neitaði Vigfús sök og hélt því fram að móðir stúlkunnar stæði á bak við kæruna. Vigfús sakar móðurina um að vera í hefndarhug og að kæran snúist um að hafa af sér peninga. Þá segir hann málið byggt á sandi. Í vor gaf héraðssaksóknari svo út ákæru á hendur Vigfúsi sem neitar sök.

Margir kvörtuðu undan Vigfúsi

Vigfús starfaði um árabil sem Boccia þjálfari og Akureyri og var fyrst  ávíttur af réttargæslumanni fatlaðra á Akureyri þar sem hann þótti sýna af sér ósæmilega hegðun sem þjálfari í garð stúlkunnar haustið 2014. Samkvæmt heimildum DV kvörtuðu milli fimm og sjö manns, sem urðu vitni að hegðun Vigfúsar á móti á Seyðisfirði.

Þetta fólk er ekkert að gera annað en að sverta mitt mannorð“

Dv ræddi við Vigfús í kjölfar ákærunnar þar sem hann var meðal annars spurður út í efni hennar. „Hún er að segja að ég hafi misnotað sig. Þetta er nauðgunarkæra. Það er ekki rétt. Það er langur vegur þar frá. Það er bara búið að leggja fram kæru og ekkert annað. Þetta fólk er ekkert að gera annað en að sverta mitt mannorð. Stelpan er sögð með þroskaskerðingu. Hún er ekki með skerðingu. Hún er ekki með örorku. Þessu máli var vísað aftur til lögreglu vegna þess að stúlkan er ekki með þroskaskerðingargreiningu. Það var farið fram á það að hún færi í greiningu til að sýna fram á að hún væri með greininguna. Þetta eru tvær konur sem eru að reyna ná sér í peninga,“ sagði Vigfús í samtali við DV á síðasta ári.

Aðspurður um hvort hann hafi átt í sambandi við stúlkuna svaraði Vigfús: „Ég get ekki farið að segja til um það. Það væri ekki skynsamlegast af mér,“ svaraði Vigfús. Dómur yfir honum var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun þar sem hann dæmdur í fjögurra ára fangelsi.

Ekki náðist í Vigfús við vinnslu fréttarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra
Fréttir
Í gær

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“
Fréttir
Í gær

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg