Opnunarpartý á föstudaginn í Útgerðinni, Vestmannaeyjum
„Ég er búin að standa á haus við að gera breytingar á húsnæðinu og var bara að koma úr vikufríi í útlöndum. Ég varð bara að fara í smá frí“ segir Hrund Óskarsdóttir, eigandi gjafavöruverslunarinnar Útgerðin. Verslunina keypti Hrund fyrir stuttu af Öldu, sem rak tvær Útgerðir, annars vegar í Vestmannaeyjum og hins vegar í Hafnarfirði. Sú síðarnefnda er ekki lengur starfrækt en Hrund tók við keflinu í Vestmannaeyjum. Verður hún með opnunarpartý í Útgerðinni, Vestmannabraut 37, á föstudaginn sjöunda október næstkomandi. „Það verða léttar veitingar í boði, róleg músík, huggulegheit.“
Útgerðin selur allskonar fallegar vörur, bæði gjafavörur frá House Doctor og Kj, sósur og sölt frá Stonewall Kitchen og mikið af íslenskri hönnun, svo sem fatnað frá Volcano og Drífu Skúla og skartgripi frá Snö. „Svo vorum við að fá nýju handklæðin frá Takk Home“ segir Hrund, greinilega mjög spennt. Hrund vonast til þess að taka inn fleiri merki í framtíðinni og fá meira af íslenskri hönnun og íslenskum vörum eins og lopapeysur. „Mig langar að hafa þetta svona allskonar-búð.“
Opnunarpartýið hefst klukkan 16:00 föstudaginn 7. nóvember og lokar verslunin klukkan 22:00. Allir eru velkomnir.
Útgerðin er staðsett að Vestmannabraut 37, 900 Vestmannaeyjum.
Nánari upplýsingar má nálgast á Facebooksíðu Útgerðarinnar