fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Undrast hörku lögreglustjórans: Lögreglumenn sóttir til saka fyrir slagsmál í Eyjum – sættust daginn eftir

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Föstudaginn 31. ágúst 2018 08:57

Hinir ákærðu lögreglumenn undrast hörku lögregluembættisins í Vestmannaeyjum. Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í byrjun júlí gaf Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum út ákæru á hendur tveimur lögreglumönnum fyrir meintar  minniháttar líkamsárásir gegn hvor öðrum. Annar maðurinn starfaði sem yfirlögregluþjónn en lét nýlega af störfum. Hinn maðurinn er enn starfandi sem rannsóknarlögreglumaður hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. DV hefur heimildir fyrir því að margir ýmsir innan lögreglunnar undrist  hörku lögreglustjóraembættisins í Vestmannaeyjum í málinu.

Slógust fyrir utan skemmtistað í Eyjum

Í ákæru, sem DV hefur undir höndum, er rannsóknarlögreglumanninum gefið að sök að hafa veist að yfirlögregluþjóninum, fyrir utan ónefndan skemmtistað í Vestmannaeyjum, og slegið hann í andlitið. Yfirlögregluþjónninn svaraði fyrir sig með því að slá rannsóknarlögreglumanninn með vinstri hendi í andlitið þannig að sá hlaut skurð við nef vinstra megin og mar undir vinstra auga.

Rannsóknarlögreglumanninum er gefið að sök að hafa í kjölfarið ýtt yfirlögregluþjóninum utan í útihurð og slegið hann með vinstri hendi ítrekuðum höggum í maga, andlit og bak. Féll yfirlögregluþjónninn í jörðina við barsmíðarnar en í kjölfarið á rannsóknarlögreglumaðurinn að hafa sparkað með vinstra fæti í síðu eða maga yfirlögregluþjónsins þar sem hann lá á fjórum fótum fyrir utan inngang skemmtistaðarins. Afleiðingar árásarinnar voru þær að yfirlögregluþjónninn hlaut sprunga vör, hrufl á hnakka og mar á vinstra gagnauga.

Sættust daginn eftir

Samkvæmt heimildum DV voru mennirnir í fríi í Vestmannaeyjum þegar árásirnar áttu sér stað. Þeim varð sundurorða og í kjölfarið brutust áflogin út. Voru þeir báðir undir áhrifum áfengis samkvæmt heimildum DV.

Þá herma heimildir blaðsins enn fremur að lögreglumennirnir hafi náð sáttum daginn eftir slagsmálin og ætlað að láta kyrrt liggja. Það hafi því komið þeim gjörsamlega í opna skjöldu þegar Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum gaf út ákæru á hendur þeim nokkrum mánuðum síðar. Meint brot þeirra eru talin falla undir 217. grein hegningarlaga. Í slíkum tilvikum er ekki ákært nema að ósk fórnarlambs eða almannahagsmunir krefjist þess.

Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum

Hvorugur mannanna vildi tjá sig um málið er blaðamaður hafði samband við þá. DV hefur þó heimildir fyrir því að margir innan lögreglunnar undrist hörku lögreglustjóraembættisins í Vestmannaeyjum að sækja lögreglumennina til saka. Sérstaklega í ljósi þess að meiðsli þeirra voru ekki alvarleg og þeir höfðu þegar náð sáttum.

Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, vildi ekki tjá sig um málið er eftir því var leitað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Í gær

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“
Fréttir
Í gær

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg