fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Eyjan

Katrín svarar ASÍ

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 28. ágúst 2018 18:43

Katrín Jakobsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur brugðist við ásökunum ASÍ frá því í dag, um að hún hafi farið með rangt mál í Kastljósþætti RÚV í gær. Hún vísar í niðurstöður skýrslu stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins:

„Alþýðusamband Íslands talar um það að ég hafi farið með rangt mál í Kastljósi gærkvöldsins þegar ég benti á að meðaltalslaunaþróun þeirra sem heyra undir kjararáð verði sambærileg við aðra hópa frá árinu 2013 til 2018 svo fremi sem laun þeirra breytist ekki frekar á þessu ári og verði fryst út árið. Er það í samræmi við niðurstöður skýrslu sem unnin var í samráði stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins og kom út í febrúar á þessu ári en þar segir orðrétt:

„Ef ekki verður um frekari endurskoðanir að ræða á árinu 2018, þ.e. laun haldist óbreytt frá síðustu úrskurðum kjararáðs til ársloka 2018, yrði launaþróun kjararáðshópsins að meðaltali við þau mörk sem rammasamkomulagið setti og að framan hafa verið metin á bilinu 43-48%. Eins og fram kemur í skýrslunni er launaþróun innan hópsins mjög ólík. Til dæmis hafa héraðsdómarar fengið 35% hækkun en ráðherrar 64% hækkun á sama tímabili. Ef litið er til lengri tíma, t.d. starfstíma kjararáðs frá árinu 2006, blasir við önnur mynd en á því tímabili hafa laun þessara starfsgreina þróast með svipuðum hætti.“

Skýrsluna má finna hér: Starfshópur um málefni kjararáðs

Rétt er að halda til haga að fulltrúi ASÍ skilaði minnihlutaáliti um þessi mál í skýrslunni en í nefndinni sátu þrír fulltrúar ríkisins og þrír fulltrúar launafólks og atvinnurekenda auk Jóhannesar Karls Sveinssonar lögmanns sem var formaður nefndarinnar. Þær breytingar sem gerðar hafa verið og verða gerðar á fyrirkomulagi launa þeirra hópa sem áður heyrðu undir kjararáð byggja á niðurstöðu meirihluta nefndarinnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Af valkyrjum

Björn Jón skrifar: Af valkyrjum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Óttinn við stjórnarmyndun valkyrja fer vaxandi hjá valdaöflum – brýnt að fram fari úttekt á slæmri stöðu þjóðarbúsins

Orðið á götunni: Óttinn við stjórnarmyndun valkyrja fer vaxandi hjá valdaöflum – brýnt að fram fari úttekt á slæmri stöðu þjóðarbúsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hvað fór fram á fundi Trudeau og Trump? – Tvær ólíkar útgáfur á sveimi

Hvað fór fram á fundi Trudeau og Trump? – Tvær ólíkar útgáfur á sveimi