„Tuttugu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur um helgina í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem hraðast ók mældist á 152 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þess ökumanns bíður 230 þúsund króna sekt, svipting ökuleyfis í tvo mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Þrír til viðbótar mældust á yfir 130 kílómetra hraða en aðrir sem kærðir voru óku heldur hægar.“ Þetta kemur fram í skeyti frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þá ók ungur ökumaður upp á hringtorg eftir að hafa verið að spóla inni í torginu. Rætt var við piltinn sem og móður hans sem gert var viðvart um hegðun hans í umferðinni.