Síðasta kvöldganga sumarsins verður um svæðið þar sem brátt rís glæslegt íbúðahverfi í Vogabyggð. Í göngunni verður fjallað um skipulag og væntanlega uppbyggingu á svæðinu þar sem list í almennings rými hefur fengið sérstakan sess. Svæðið er einstaklega staðsett í borginni við ósa Elliðaánna og með útsýni til Esju auk þess sem þar er að finna einstök náttúrufyrirbæri.
Gengið verður um svæðið í fylgd Sigríðar Magnúsdóttur arkitekts á arkitektastofunni Tröð og Ólafar K. Sigurðardóttur safnstjóra Listasafns Reykjavíkur en safnið hefur haft umsjón með útilistaverkum í Reykjavík og annast framkvæmd alþjóðlegara samkeppni um útilistaverk á svæðinu. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að listaverk skuli vera hluti af heildarhönnun almenningsrýma í þessu nýja hverfi. Samkeppnin stendur nú yfir og hafa átta listamenn, sem skila tillögum undir lok árs, verið valdir til þátttöku.
Gangan hefst á bílastæði við Endurvinnsluna, Knarrarvogi 4, kl. 20. Þáttakendur er hvattir til að klæða sig eftir veðri.
Listasafn Reykjavíkur, Borgarbókasafnið og Borgarsögusafn Reykjavíkur bjóða upp á kvöldgöngur með leiðsögn öll fimmtudagskvöld yfir sumartímann. Mikil þátttaka er jafnan í göngunum og taka þær eina til eina og hálfa klukkustund.
Ókeypis aðgangur.