Borgarbókasafnið og Borgarleikhúsið bjóða gestum á leikhúskaffi um seinni hluta Dúkkuheimilisins eftir Henrik Ibsen.
Viðburðurinn fer fram á Borgarbókasafninu í Kringlunni í dag kl. 17.30-19.
Una Þorleifsdóttir leikstjóri segir gestum frá uppsetningu Borgarleikhússins á verkinu.
Í kjölfarið verður rölt yfir í Borgarleikhúsið þar sem gestir fá stutta kynningu á leikmynd og annarri umgjörð sýningarinnar.
Í lokin býðst gestum 10% afsláttur á miðum á Dúkkuheimlið, 2. hluta.