fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Eyjan

Sigmundur um heilbrigðisstefnu stjórnvalda: „Ekki hægt að kalla annað en harðlínu sósíalisma“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 27. ágúst 2018 11:30

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, líkir heilbrigðisstefnu stjórnvalda við harðlínu sósíalisma í grein í Fréttablaðinu í dag. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra úr VG er hvergi nefnd á nafn, en ljóst ætti að vera á lestri greinarinnar hverjum pillan er ætluð:

„Það er því mikið áhyggjuefni að nú skuli hafa verið tekin upp stefna sem er ekki hægt að kalla annað en harðlínu sósíalisma í heilbrigðismálum. Teknar eru ákvarðanir sem augljóslega eru óskynsamlegar og jafnt og þétt horfið frá því sem best hefur reynst á Íslandi og erlendis. Allt í nafni hugmyndafræði sem hvergi hefur gengið upp. Jafnvel góðgerðarsamtök sem byggja að miklu leyti á sjálfboðastarfi fá að finna fyrir hinni marxísku endurskipulagningu.“

 

Sigmundur undrast þær ákvarðanir sem teknar eru til þess eins að fá ekki á sig stimpil einkavæðingar eða einkareksturs hérlendis:

„Á meðan verið er að koma á sósíalíska kerfinu sendir ríkið sjúklinga í aðgerðir á einkareknum stofnunum í Danmörku og Svíþjóð og greiðir fyrir þrefalt það sem myndi kosta að framkvæma aðgerðirnar á Íslandi. Í sumum tilvikum fylgja jafnvel íslenskir læknar sjúklingunum til útlanda og framkvæma aðgerðina þar. Viðhorf þeirra sem ráða för virðist vera að um sé að ræða starfsemi sem teljist á einhvern hátt óhrein og megi því ekki fara fram innan landamæranna en hægt sé að líta fram hjá því og borga aukalega fyrir ef „glæpurinn” er framinn utan landsteinanna. Algengt er orðið að fólk sem þarf að leita til sérfræðilækna fái ekki tíma vegna þess að læknum, sem þó eru til í að vinna fyrir opinbera kerfið, er ekki hleypt inn. Sjúklingar geta því valið um að þjást á biðlista í ár eða greiða sjálfir fyrir þjónustuna og fá hjálp strax. Sósíalisminn leiðir oft af sér ójafnræði.“

 

Þá nefnir Sigmundur að framkoma stjórnvalda í garð SÁÁ sé dæmi um niðurskurð á röngum stað:

„Verst er þó líklega að þar sem hægt er að ná mestum árangri og bjarga fólki með forvörnum eða með því að bregðast tímanlega við er þrengt að þeim sem geta náð mestum árangri. Þrengt er að starfsemi sem getur sparað samfélaginu gríðarlegt fjármagn til viðbótar við að bjarga heilsu og mannslífum. Framkoma stjórnvalda gagnvart SÁÁ er skýrt dæmi um þetta. SÁÁ eru ekki ríkisapparat og falla því utan hinnar nýju stefnu. Stefnu sem virðist miða að því að íslenska heilbrigðiskerfið verði eitt bákn sem starfar á einum stað og sá staður skal vera við Hringbraut í Reykjavík.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Svarthöfði skrifar: Það sem lesa má í rjómaskálina í eldhúsinu hennar Ingu

Svarthöfði skrifar: Það sem lesa má í rjómaskálina í eldhúsinu hennar Ingu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Mogginn og Sjálfstæðisflokkurinn engjast

Orðið á götunni: Mogginn og Sjálfstæðisflokkurinn engjast