„Mér þótti vænt um að fá þetta bréf, því þarna birtist skriflega það sem manni grunaði, þetta er svona tilraun til þöggunar,“ sagði Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, um bréf skrifstofustjóra skrifstofu borgarráðs, þar sem því var meðal annars haldið fram að umræða um mannahald hjá Reykjavíkurborg í aðdraganda kosninganna hefði haft áhrif á líðan starfsfólks og upplifun þeirra á starfsöryggi.
Þetta kemur fram í nýju hlaðvarpi á DV.is, Stóru málin, sem birtist fyrst í dag. Þáttastjórnendur eru þeir Valur Grettisson, ritstjóri Reykjavík Grapevine, Bjartmar Alexandersson og Björn Þorfinnsson, sem báðir eru blaðamenn á DV.
Í fyrsta þættinum fer Eyþór yfir harðvítug átök á milli kjörinna fulltrúa í minnihluta og embættismanna. En kveikjan er dómur yfir Reykjavíkurborg þar sem Helga Björg Ragnarsdóttir, höfundur fyrrnefnds bréfs og skrifstofustjóri skrifstofu borgarráðs, var gerð afturreka með áminningu sem hún veitti undirmanni sínum.
Í dómi var tekið óvanalega harkalega til orða og sagt meðal annars að yfirmaðurinn gæti ekki undirgengist starfsfólk sitt eins og dýr í hringleikhúsi.
Eyþór sagði meðal annars að honum þætti bréfið sem kjörnir fulltrúar fengu, og málið allt, eins og söguþráður í þætti með Monty Python eða Yes Minister. „Þetta er of absúrd fyrir Borgen eða House of cards,“ bætti hann svo við.
Eyþór sagði borgarstjórn vera eins og huggulegt teboð, „sem við erum vissulega að trufla,“ sagði hann svo.
Fjölmargt fleira bar á góma í þættinum. Þar á meðal litla „tungumálið“ þar sem oddviti Vinstri grænna, Líf Magneudóttir rak úr sér tunguna á borgarráðsfundi.
Spjallið við Eyþór hefst á 47 mínútu eða áður fóru þáttastjórnendur yfir sumarið, hvalveiðar, fylgi VG og svo stöðu flugfélanna.
Stóru málin verða á dagskrá vikulega og birtast ávallt á föstudögum á vef DV.