Á slóðum fullveldis er yfirskrift kvöldgöngu sem Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur mun leiða í kvöld.
Gengið verður um miðbæ Reykjavíkur og rifjaðir upp atburðir hins viðburðarríka árs 1918. Ef aðeins eru skoðaðir íslenskir atburðir má helst nefna að hér var þvílíkur fimbulkuldi að veturinn árið 1918 var kallaður frostaveturinn mikli. Sama ár gaus Katla og fylgdi gosinu mikið jökulhlaup og urðu bændur fyrir miklum skemmdum. Aðeins viku síðar barst spænska veikin til landsins og kostaði hátt í 500 íslensk mannslíf. Þann 1. desember þetta ár átti hins vegar sá merki og jákvæði atburður sér stað að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki í konungssambandi við Danmörku. Lítið var þó um hátíðarhöld vegna eftirkasta spænsku veikinnar.
Lagt verður af stað frá Hörpu kl. 20 (við listaverk Ólafar Pálsdóttur Tónlistarmaðurinn). Gangan tekur um það bil eina og hálfa klukkustund og hentar öllum. Leiðsögnin fer fram á íslensku.
Þátttaka er ókeypis. Verið velkomin!