Guðrún Brá Björgvinsdóttir kylfingur úr GK sem varð Íslandsmeistari á dögunum og Berglind Björnsdóttir kylfingur úr GR tóku þátt á Bossey atvinnumótinu í Frakklandi.
Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í kvennaflokki í Evrópu.
Guðrún Brá endaði í 23. sæti á +2 samtals en hún lék hringina þrjá á (70-70-75) eða 215 höggum.
Berglind komst ekki í gegnum niðurskurðinn en hún lék fyrstu tvo keppnishringina á 75 og 78 höggum eða 153 samtals (+11).