Sergio Aguero, framherji Manchester City, átti frábæran leik fyrir liðið í dag sem mætti Huddersfield.
Aguero gerði þrennu fyrir Englandsmeistarana í öruggum 6-1 sigri en var tekinn af velli á 76. mínútu leiksins.
Samband Aguero og þjálfara City, Pep Guardiola, er mjög gott þó að byrjun þeirra hafi kannski verið erfið.
Aguero var orðaður við brottför frá City á fyrstu leiktíð Guardiola en hann var ekki alltaf fastamaður.
Það er allt annað að sjá tvímenningana í dag og fékk Aguero koss frá stjóranum er hann kvaddi völlinn í dag.
Myndir af þessu má sjá hér.