Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, hefur leik á fimmtudaginn á Evrópumótaröðinni sem er sterkasta atvinnumótaröð Evrópu.
Nordea meistaramótið fer fram á Hills vellinum við Gautaborg.
Birgir Leifur lék vel um síðustu helgi á meistaramóti Evrópu í liðakeppni í Glasgow. Þar var hann í gullverðlaunaliði Íslands í blandaðri liðakeppni og hann fékk silfurverðlaun í liðakeppni – þar sem hann lék með Axel Bóassyni.
Á meðal keppenda á Nordea mótinu eru þekktir kylfingar á borð við Thorbjørn Olesen, Søren Kjeldsen, en þeir eru báðir Danir. Renato Paratore frá Ítalíu hefur titil að verja og Martin Kaymer frá Þýskalandi mætir til leiks en hann hefur sigrað á risamóti á ferlinum. Heimamennirnir Robert Karlsson, Alexander Björk og Joakim Lagergren eru líklegir til afreka.