Ólétt af frosnu sæði föður síns
Í júlí síðastliðinn lét hin þrjátíu og fjögurra ára danska Grunta Goebbels frjóvga sig með frosnu sæði föður síns, sem lést fyrr á árinu, þá sjötíu og þriggja ára gamall. Frá þessu greinir fréttaveitan World News Daily Report. Höfðu feðginin átt í ástarsambandi frá því árið 2006. Að sögn Gruntu hefði faðir hennar, Helmut Goebbels, líkt og feður margra lítilla stúlkna, verið sín eina sanna ást og að það væri heiður að fá að bera barn hans undir belti.
Grunta og Helmut héldu ástarsambandi sínu leyndu fyrir yfirvöldum og létu ekki vita af því þegar þau sóttu um glasafrjóvgun í febrúar 2016, einungis fáeinum vikum áður en faðirinn lést í bílslysi. Tólf vikum eftir að frjóvgunin hafði átt sér stað létu aðstandendur Gruntu yfirvöld loks vita hvernig málin stæðu.
Fyrst um sinn sýndu danskir dómstólar mikla andstöðu gegn þunguninni og var Grunta beðin um að rjúfa meðgönguna. Síðar dæmdi dómstóllinn Gruntu Goebbels í hag. Því þótt kynlíf á milli náskyldra einstaklinga sé ólöglegt í Danmörku og refsivert athæfi sem getur numið allt að sex ára fangelsisvist, eru engin lög sem banna glasafrjóvgunina þar sem ekki er um að ræða kynferðislegt athæfi í sjálfu sér. Sérfræðingar telja að með þessu hafi danskir dómstólar sett lagalegt fordæmi sem mun hafa athyglisverðar afleiðingar í för með sér.