Everton og Wolves eigast við í ensku úrvalsdeildinni nú rétt í þessu en nú var verið að flauta til leikhlés.
Everton byrjaði leikinn vel í dag en Brassinn Richarlison skoraði mark eftir aðeins 17 mínútur.
Staðan var 1-0 þar til á 44. mínútu leiksins er miðjumaðurinn Ruben Neves jafnaði fyrir þá appelsínugulu.
Mark Neves var virkilega laglegt en hann skoraði beint úr aukaspyrnu á Jordan Pickford, landsliðsmarkvörð Englands.
Hér má sjá mark Neves.
Ruben Neves doing it in the Premier League. Unreal player. pic.twitter.com/gHzm7TRieb
— Joshua ?? (@big_man_joshyy) 11 August 2018