Vissir þú að það er leikur einn að fjarlægja svartar rákir eftir skó á parketi
Góð húsráð eru ómissandi í amstri hversdagsins. En hver hefur ekki lent í því að standa ráðþrota yfir brenndri sósu eða bölva svörtum rákum á parketinu. Hér að neðan má finna 11 sniðug ráð úr ólíkum áttum sem gætu auðveldað heimilisþrifin sem og eldhúsverkin.
—
Þegar þú ert með taco í matinn byrjaðu þá á því að leggja salatblað inn í taco-skelina. Ef hún brotnar þá fer innihaldið ekki út um allt heldur helst í salatblaðinu.
—
Ef sósan brennur við í pottinum þá er óþarfi að gefast upp. Þú getur hellt sósunni yfir í annan pott og haldið áfram að sjóða hana þar. Þegar því er lokið þá ættir þú að bæta smá sykri út í sósuna. Hann kemur í veg fyrir að þú finnir brunabragð.
—
Ef þú ert ekki með hanska við höndina þegar þú skerð chili-pipar þá er mjög góð hugmynd að löðra hendurnar í olíu áður en þú byrjar að skera.
—
Ef þú þarft að mýkja smjör, hratt og auðveldlega, þá er sniðugt að setja það inn í smjörpappír og fletja smjörið rólega út með bökunarkefli.
—
Þegar þú ert á leiðinni á ströndina er sniðugt að setja símann í lítinn glæran plastpoka. Það heldur sandinum fjarri og þú getur notað símann á meðan hann er í pokanum.
—
Vissir þú að það er leikur einn að fjarlægja svartar rákir eftir skó á parketi með því að strjúka yfir þær með tennisbolta?
Þegar þú straujar þá er vel hægt að nota sléttujárn til að ná betur á erfiðustu staðina. Til dæmis í kringum tölur og kraga.
—
Ef þig langar að hlusta á tónlist í símanum en ert ekki með hátalara, prófaðu þá að setja símann ofan í glas eða skál og heyrðu hvað gerist.
—
Sparaðu tíma, orku og peninga með því að setja þurrt handklæði inn í þurrkarann í hvert skipti sem þú þurrkar þvott.
—
Vissir þú að það er vel hægt að frysta avókadó. Þegar þú ert búin að nota það sem þú þarft af avókadóinu, settu það í frystipoka og inn í frysti.
—
Og meira um avókadó. Þú getur notað það í staðinn fyrir smjör í margar uppskriftir.