Portúgalski landsliðsmaðurinn Andre Gomes hefur gert eins árs langan samning við lið Everton.
Gomes skrifaði í dag undir eins árs langan lánssamning við enska félagið en hann kemur frá Barcelona.
Gomes er 25 ára gamall Portúgali en hann á að baki 46 deildarleiki fyrir Barcelona á tveimur árum.
Gomes stóð sig virkilega vel með Valencia tímabilið 2015-2016 og var keyptur til Börsunga þar sem hann þótti ekki standa undir væntingum.
Gylfi Þór Sigurðsson hefur því fengið nýjan félaga á miðjuna og verður fróðlegt að sjá hvort þeir nái að spila saman.