Daði Freyr Pétursson sendi í gær frá sér nýtt myndband á YouTube þar sem hann tekur ábreiðu af lagi Sting Shape of my heart.
Lagið kom út á sólóplötu Sting Ten Summoner‘s Tales árið 1993.
Daði Freyr hefur áður sent frá sér ábreiður þekktra íslenskra laga, Gleðibankann og Paper.
Fun fact:
Das Supertalent (Þýskaland Got Talent) hafði samband fyrir nokkru og vildi fá mig sem keppenda í þáttinn, ég sló til, gerði þessa ábreiðu og senti þeim, en þá hættu þeir við, 3 vikum fyrir tökur. Ég er eiginlega bara pínu feginn.https://t.co/Q3M0PZhlNL— Daði Freyr (@dadimakesmusic) August 2, 2018