Á fimmtudag opnar sýning Ragnhildar Jóhanns, Rómönsur, í sýningarsal SIM Hafnarstræti 16.
Á sýningunni má sjá fjögur ný málverk af íslenskum femínistum lesandi ástarsögur, Fríðu Rós Valdimarsdóttur, Hildi Lilliendahl Viggósdóttur,
Maríu Lilju Þrastardóttur og Sóleyju Tómasdóttur.
Auður Jónsdóttir rithöfundur skrifar í sýningarskrá: „Allar konurnar á myndum Ragnhildar hafa subbað sig út í opinberri umræðu. Þannig hafa þær
allar dæmt sig til að vera fláráð kvendi í rauðu ástasögunum. Og í athugasemdum dagsins í dag
á netinu. Þær eru konurnar sem karldólgar fullyrða að séu svona ákveðnar í skoðunum sínum af
því að þær séu ekki nógu kvenlegar.“
Opnunin er kl. 17-19 og á henni verður gjörningur fluttur af fjölda kvenna, hann hefur hvorki upphaf né endi en verður í gangi alla opnunina.
Sýningin stendur frá 2.- 24. ágúst og er opin virka daga milli kl 10-16.