Elín Káradóttir heldur úti blogsíðu undir eigin nafni þar sem hún skrifar um jákvætt hugarfar, fjármál og lífstíl. Í þessum pistli fjallar hún um hversu auðvelt getur verið að týna markmiðinu, en Elín er í sjálfskipuðu prógrammi sem hún kallar #10peppvikur.
Einhverra hluta vegna er mjög auðvelt að missa sjónar á markmiðinu í viku tvö. Ég gleymdi því nokkrum sinnum að ég væri með #10peppvikur í gangi. Ætli verkefni næstu viku verði ekki að teikna upp markmiðið mitt og hengja myndina á stað sem ég sé hana á hverjum degi. Til að minna mig á hvert ég stefni.
Eins og einhverjir hafa tekið eftir þá er ég í sjálfskipuðu prógrammi sem ég kalla #10peppvikur. Þar sem ég hvet sjálfa mig áfram í átt að betra lífi, mjaka mér nær kjörþyngd og vera orkumeiri. Einhverjir eru að fylgjast með mér á Instagram og sjá hvað ég er að elda og bralla í kringum #10peppvikur.
Staðan eftir vikuna er svona:
Matarræði: Hefur gengið ágætlega. Vigtaði nokkrum sinnum máltíðirnar til þess að æfa augun. Minn stærsti veikleiki eru skammtastærðir en á sama tíma er ég með barn á brjósti og mér finnst ég þurfa borða ótrúlega mikið. Þá reyni ég að velja næringarmikinn mat en lágan í hitaeiningum. Þar kemur grænmeti sterkt inn.
Ég datt í smá sukk í vikunni og ég missti svolítið sjónar á markmiðinu mínu. Fékk mér einn bragðaref og 2x ís. Það er svo furðulega erfitt að skrifa þetta niður en á sama tíma svo gott. Ég skammast mín hálfpartinn að hafa borðað þetta og ég fæ smá kjánahroll yfir sjálfri mér, því þetta sukk gerði lítið fyrir mig.
Veikleiki: Bragðarefur. Ég setti mér reglu fyrir nokkrum árum að leyfa mér ekki meira en 1 bragðaref í mánuði.
Hreyfing: Gekk svo vel! Ég byrjaði vikuna á því að taka til í bílskúrnum og gera hann alveg fínan sem gerði það að verkum að ég er búin að fara 2x í vikunni inn í bílskúr að gera æfingar. Ég er búin að fara 2x í gönguferð líka í vikunni. Ég er mjög sátt með mig hreyfingarlega séð.
Vellíðan: Mér líður svo vel. Ég er búin að fá góðan svefn, drekka vel af vatni og það er þokkalegt jafnvægi á öllu hjá mér (þá meina ég þvottahúsið á heimilinu, samskipti mín við fjölskyldu og vini og svo vinnan). Allt í gríðar góðum balance.
Vigtin: -400 gr.