Kelsie Sneegas og Josept Crockett kynntust í menntaskóla, urðu ástfangin og eftir að hafa verið saman í fjögur ár bauðst þeim að sitja fyrir á brúðkaupsmyndum á Íslandi. Ákváðu þau að slá til og gera ferðina að alvöru brúðkaupi. Þau giftu sig á Íslandi 15. júlí síðastliðinn og síðan verður veisla þann 3. ágúst næstkomandi í Kansas City.
Á heimasíðu þeirra má lesa söguna um hvernig þau kynntust, af hverju þau völdu Ísland til að gifta sig og hvað er framundan hjá þeim. Sagan um fyrstu kynni er sögð frá sjónarhóli beggja og af báðum sögum er ljóst að þetta var ást við fyrstu sýn. Hvorugt þorði þó að láta ást sína í ljós í fyrstu, en þegar þau byrjuðu að vinna saman við að aðstoða nemendur með sérþarfir kynntust þau betur og loksins tók Joseph af skarið og bauð Kelsie upp á kaffibolla sem varð að daglöngu stefnumóti.
„Við höfum verið svo heppin að vinna með frábærum ljósmyndara sem heitir Peyton Byford og hún spurði hvort við vildum koma með henni og eiginmanni hennar til Íslands og sitja fyrir á nokkrum brúðkaupsmyndum,“ segir Kelsie.
„Við erum búin að vera í sambandi í fjögur ár,“ segir Joseph. „Og vorum búin að ræða að þegar við giftum okkur vildum við hafa það innilegt og ævintýragjarnt. Ísland er akkúrat það. Eftir að hafa rætt saman ákváðum við að breyta ferðinni í alvöru brúðkaup og fá nánustu fjölskyldumeðlimi með til Íslands.“
Instagram Kelsie, Joseph og Peyton.