Rúrik Gíslason heldur áfram að safna fylgjendum á Instagram og þegar þetta er skrifað eru þeir orðnir 1,3 milljónir.
Ætla má að þeim muni fjölga verulega eftir myndinni sem hann setti inn fyrir stuttu, en á hálftíma hefur hún fengið 107 þúsund „læk.“
Þann 18. júní síðastliðinn setti Rúrik inn mynd þar sem sjá mátti hann í baráttunni við Lionel Messi, einn allra besta knattspyrnumann sögunnar. Aðdáendur Rúriks voru ekki lengi að taka við sér og tíu mínútum eftir að hún kom inn voru rúmlega átta þúsund fylgjendur hans búnir að setja „læk“ á hana. Í heildina er myndin þó „aðeins“ komin með 253 þúsund „læk.“