fbpx
Laugardagur 19.apríl 2025
Fréttir

„Full ástæða til þess að vara veiðimenn við“

Smitsjúkdómurinn orf greinist í hreindýrum hér á landi

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 15. september 2016 10:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Smitsjúkdómurinn orf hefur greinst í nokkrum hreindýrum á yfirstandandi veiðitímabili. Sjúkdómurinn er vel þekktur í sauðfé. Oftast verða dýrin ekki mikið veik en smitið getur valdið skemmdum á júgri og þar með vanþrifum í kálfum. Fólk getur smitast af snertingu við hrúðrið sem sýkingin veldur.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Matvælastofnun hefur sent frá sér. Í tilkynningunni eru veiðimenn varaðir við og minntir á að snerta aldrei hrúður á hreindýrum með berum höndum. Tilkynningu Matvælastofnunar má lesa hér að neðan:


Náttúrustofa Austurlands hafði samband við Matvælastofnun vegna gruns um orf í hreindýrum en það var leiðsögumaður með hreindýraveiðum hjá Umhverfisstofnun sem hafði fyrst samband við Náttúrustofuna. Sýni voru tekin og send á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum þar sem greining fór fram. Meinafræðiniðurstöður leiddu í ljós að breytingarnar samrýmdust þeim sem verða við orf-veirusýkingu. Við veirurannsókn, sem var einnig framkvæmd á Keldum, kom í ljós að um parapox-veiru var að ræða sem staðfestir greininguna.

Orf, sem einnig er nefnt smitandi munnangur, kindabóla eða sláturbóla er veirusýking sem er landlæg í sauðfé um allt Austurland og hefur verið í áratugi. Hún finnst einnig víðar á landinu. Veiran virkar þannig að eftir smit myndast lífslangt ónæmi, því er mikilvægt að ungviði smitist snemma þar sem veiran er landlæg. Þegar veiran berst í eldri dýr sem ekki eru með ónæmi þá fer þetta á aðra staði en munnvik, t.d. við hornarót, klaufir eða það sem verst er á júgur og spena.

Mjög líklegt er að orf geti smitast frá sauðfé yfir í hreindýr en sýkingin hefur greinst í mörgum dýrategundum. Líklega veldur þetta ekki miklum vandræðum nema það berist á júgur hreinkúa meðan þær mjólka mest. Þá verða helstu áhrifin á hjörðina sú að kálfar gætu verið í minna lagi en það fer eftir aldri kálfanna þegar kýrin smitast. Sýkingin gengur þó yfir á nokkrum vikum. Smit verður með snertingu og öðru sem hefur komist í snertingu við sýkta vessa.

Borist hafa tilkynningar frá Austurlandi um alvarlegri tilfelli þar sem breytingarnar ná dýpra í undirliggjandi vef. Líklegt er að það séu afleiðingar bakteríusýkinga sem koma í kjölfar húðbreytinga sem stafa af veirusýkingunni. Afleiðingar slíkra sýkinga eru líklegar til að hafa langvarandi áhrif á mjólkureiginleika hreindýrakúnna en það fer eftir því hversu djúpt í vefinn sýkingin nær.

Smitandi munnangur getur borist í fólk og veldur þá stundum vondum sýkingum, einkum á fingrum. Það er því full ástæða til þess að vara veiðimenn við og minna á að snerta aldrei hrúður með berum höndum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

ÍR beið ósigur gegn Reykjavíkurborg

ÍR beið ósigur gegn Reykjavíkurborg
Fréttir
Í gær

Ökuníðingur dreginn fyrir dóm eftir skrautlega eftirför

Ökuníðingur dreginn fyrir dóm eftir skrautlega eftirför
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona föst inni á salerni

Kona föst inni á salerni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maður á sjötugsaldri sparkaði í andlit lögreglumanns

Maður á sjötugsaldri sparkaði í andlit lögreglumanns
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fluttu tæplega þúsund töflur af stórhættulegu efni til landsins

Fluttu tæplega þúsund töflur af stórhættulegu efni til landsins
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aukin viðskipti ESB og Kína – „Vestrið eins og við þekktum það er ekki lengur til,“ segir von der Leyen

Aukin viðskipti ESB og Kína – „Vestrið eins og við þekktum það er ekki lengur til,“ segir von der Leyen
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Allt virðist í skrúfunni hjá Faxaflóahöfnum – „Ólaf­ur ásak­ar mig um að vera hryðju­verkamaður“

Allt virðist í skrúfunni hjá Faxaflóahöfnum – „Ólaf­ur ásak­ar mig um að vera hryðju­verkamaður“