Nýjaland, Stórhöfða 15, 110 Reykjavík
Allir eiga erindi í heilun, jafnt sjúkir sem heilbrigðir og jafnt fullorðnir sem börn, að mati Stefaníu S. Ólafsdóttur, græðara hjá Nýjalandi, en hún hefur fengist við heilun í yfir 20 ár auk þess sem hún leggur stund á höfuðbeina- og spjaldhryggjarjöfnun. Nýjaland er staðsett að Stórhöfða 15, Reykjavík, en þar tekur Stefanía fólk í meðferð, en auk þess rekur hún heilunarskóla á staðnum og selur blómadropa, sem auka orkuflæði í líkama og sál, koma á jafnvægi og fylla hjarta okkar af ljósi.
Stefanía er lærður sjúkraliði og starfaði árum saman á Landakotspítala. Hún kynntist heilun í kjölfar þess að hún fékk fæðingarþunglyndi eftir fæðingu fjórða og yngsta barns síns. Fékk hún mikla bót við þetta. Stefanía ber afar mikla virðingu fyrir hinum hefðbundnu læknavísindin en segir að þau gæti ekki alltaf nægilega vel að samspili líkama og sálar:
„Líkami og sál eru ein heild, það er ekki hægt að aðskilja þetta. Stundum ná læknavísindin ekki nægilegum árangri og þá getur skýringin verið sú að orkukerfið er ekki heilbrigt. Það er hægt að fá einhverja bót með lyfjum eða uppskurði en ef orkukerfið er ekki meðhöndlað þá hættir okkur til að fara í sama farið aftur eftir einhvern tíma,“ segir Stefanía.
Viðfangsefni heilunar eru meðal annars orkustöðvar og orkublik:
„Við erum að vinna með ákveðnar orkustöðvar og orkublik sem umlykja líkamann og eru ósýnileg flestum en við getum mjög auðveldlega fundið fyrir þeim og ástandi þeirra með höndunum. Stóru orkustöðvarnar eru sjö. Ein er staðsett fyrir ofan hvirfilinn. Hún inniheldur alla liti sem til eru. Þessi orkustöð tengir okkur við alheimsorkuna. Næsta orkustöð er við ennið og er mest fjólublá. Hálsstöðin er næst og hún er mest blá, í alls konar bláum tónum. Litirnir fara eftir því hvernig okkur líður og hvað orkustöðvarnar eru heilbrigðar. Því heilbrigðari sem orkustöðvarnar eru því skærari, bjartari og fallegri eru litirnir.“
Um höfuðbeina- og spjaldhryggjarjöfnun hefur Stefanía meðal annars þetta segja:
„Við geymum áföllin sem við verðum fyrir á ákveðnum svæðum líkamans og þau geta orðið að meini ef ekki er losað um. Aðalmarkmið með höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð er að koma á og viðhalda heilbrigði og jafnvægi á öllum sviðum. Þetta er í senn mild og öflug meðferð sem getur hjálpað flestum, hvort sem um er að ræða minniháttar óþægindi eða alvarlega kvilla. Meðferðin felst í mjög mildri snertingu þess sem meðhöndlar, við höfuð, spjaldhrygg og aðra líkamshluta þess sem þiggur. Hendurnar eru notaðar til að nema hreyfispennumynstur sem eiga sér djúpar rætur í kjarna líkamans. Þessi mynstur eru endurspeglun hreyfingar í höfuðbeina- og spjaldhryggjarkerfinu. Þiggjandi meðferðarinnar liggur fullklæddur á bekk í friðsælu umhverfi. Hann nær þar djúpri slökun og upplifir létti og vellíðan.“
Auk þess að bjóða upp á meðferð rekur Stefanía heilunarskóla að Stórhöfða 15. Markmiðið með náminu er að kenna fólki stjórn á næmleika sínum, sjálfsheilun og heilbrigða hugsun gagnvart sjálfu sér og öðrum. Þannig öðlast fólk leikni í að heila aðra og umhverfið. Námið hjálpar fólki að ná meiri árangri í lífi og starfi.
Stefanía er einnig með blómadropa til sölu. Blómadropar vinna ekki með því að ráðast beint á sjúkdóma, heldur auka þeir orkuflæðið í líkama okkar og sál. Heilsan batnar þegar tilfinningalegt jafnvægi verður jákvæðara. Blómadropar eru notaðir til þess að koma á jafnvægi og fylla hjarta okkar af ljósi. Allir geta notað blómadropa frá fæðingu, þeir eru fullkomlega öruggir.
Sem fyrr segir er Nýjaland staðsett að Stórhöfða 15 í Reykjavík. Símanúmerin eru 517-4290 og 868-2880. Fróðlegar upplýsingar er að finna á heimasíðunni nyjaland.is og einnig á Facebook-síðu Nýjalands.