fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024

Eistnaflug hefst á miðvikudag – Konur eru aðalskipuleggjendur í ár

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 9. júlí 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Konur eru í meirihluta skipuleggjenda tónleikahátíðarinnar Eistnaflugs í ár, en þær Magný Rós Sigurðardóttir, Helga Dóra Jóhannesdóttir og Erna Björk Baldursdóttir eru þrjár af fjórum skipuleggjendum. Karlmaðurinn í hópnum er Birgir Axelsson.  Tónleikahátíðin Eistnaflug fer fram 11. – 14. júlí á Neskaupstað.

Hófst sem partý hjá Stefáni stofnanda

Eistnaflug byrjaði sem stórt partý í Egilsbúð árið 2005. Stofnandi Eistnaflugs, Stefán Magnússon, hafði flutt austur í Neskaupstað og langaði að halda þar þungarokkstónleika. Tíu árum seinna var Eistnaflug orðið það stórt að húsnæðið Egilsbúð var sprungið og tekin var sú ákvörðun að flytja hátíðina yfir í íþróttahúsið á Neskaupstað, þar sem hún er enn.

Helga Dóra og Magný Rós.

Á Kvennablaðinu í dag birtist umfjöllun um hátíðina og viðtal við Magný Rós og Helgu Dóru. Magný er meðal annars fjármálastjóri Eistnaflugs, en hún byrjaði að vinna á hátíðinni árið 2015 þegar hún flutti úr Egilsbúð yfir í íþróttahúsið: „Það var svo í janúar 2017 sem ég byrja að starfa með framkvæmdastjórn hátíðarinnar og tek svo við sem fjármálastjóri í ágúst 2017.”

Helga Dóra er yfirmaður miða- og varningasölu á svæðinu auk þess sem hún starfar í framkvæmdastjórn Eistnaflugs: „Ég hef unnið í varningasölu fyrir fullt af hljómsveitum í gegnum árin, þeirra á meðal eru Dimma og Sólstafir. Ég kem inn í Eistnaflug þannig að ég vinn á hátíðinni við að selja varning fyrir hljómsveitirnar mínar og við stækkunina var ákveðið að sameina mína sölu og varningasölu Eistnaflugs. Út frá því hefur aðkoma mín að hátíðinni orðið meiri.”

Birgir Axelsson

Konur eru enn í minnihluta sem áhorfendur, en í meirihluta sem skipuleggjendur

Þær Magný og Helga segja að konur séu enn í minnihluta sem áhorfendur í senunni en telja að bilið á milli fari minnkandi: „Hljómsveitirnar eru ennþá í stórum hluta karlmenn, en konurnar eru margar hverjar í skipulagningu tónlistarhátíða, eru umboðsmenn og vinna í plötuútgáfum,” segja þær. „Þannig að metalbransinn er með jafnari kynjahlutföll en sjást á tónleikum. Gott dæmi er stjórn Eistnaflugs, við erum fjögur sem stjórnum hátíðinni og þar af er einn karlmaður. Ef við tökum þetta lengra þá erum við með stóran framkvæmdahóp á bak við okkur og samanstendur hann að stórum hluta af konum.”

Meira en helmingur dyravarða á hátíðinni eru konur (sjö af 12). Þetta eru aðallega eldri konur sem taka móðurlega á gestum og ná betur að halda uppi reglunni um að bannað sé að vera fáviti.

Eistnaflug er ekki bara þungarokk

Eistnaflug er þekkt fyrir að vera aðallega þungarokkshátíð, en undanfarin ár hefur verið boðið upp á atriði sem flokkast ekki þar undir. Sem dæmi má nefna Pál Óskar árið 2016 og GusGus í ár.

„Það var ógleymanlegt þegar þungarokkararnir báru Pál Óskar í gúmmíbát yfir allt „crowdið” og í framhaldinu myndaðist „mosh pittur” undir tónum diskósins.

„Ég er aðeins mýkri þungarokkari en hinar stelpurnar. En ég er alltaf spenntust fyrir íslensku böndunum og gæsahúðin að standa uppi og sjá þau spila á alþjóðlegri tónlistarhátíð í Neskaupsstað er dásamleg. Maður er búin að fylgjast með þessum hljómsveitum í gegnum árin og það er svo gaman að horfa á þau blómstra og dafna og trylla lýðinn. Að mínu mati er hápunktur hvers ár partýið á laugardagskvöldið. Þegar meira að segja hörðustu þungarokkarar breytast í diskódrottningar og dansa á fullu hvort sem það er við tónlist Páls Óskars eða FM Belfast!,“ segir Helga.

„Það er mikil stemmning fyrir GusGus innan okkar raða og hjá Austfirðingum almennt, og mikil spenna fyrir þeim. Við erum svo með tvo dj-a sem ætla að loka kvöldinu en það er DJ Fahrenheit og Amma andskotans. Við verðum með dragdrottningar til að hjálpa okkur að fagna fjölbreytileikanum. Amma andskotans er dragdrottning og er einn af dj-unum á laugardagskvöldið. Hún hefur dragdrottningar- og kónga með sér í liði. Fögnum fjölbreytileikanum og gender-bendum Austfirði! Við getum lofað stórkostlegri diskóstemmningu fram á nótt.“

Slagorð frá upphafi: Bannað að vera fáviti!

„Bannað að vera fáviti” er slagorð sem Stebbi byrjaði með á sínum tíma. „Þetta slagorð hefur sem sagt fylgt okkur frá upphafi. Við höfum alltaf lagt mikla áherslu á að þú átt ekki að labba framhjá ef þú sérð einhvern í vanda, þetta er hátíð þar sem allir eru vinir og ef þú sæir einhvern með leiðindi og vesen þá áttu að fara og faðma hann, það er ekkert djöfulsins rugl og bannað að vera fáviti.”

Eistnaflug er hátíð fyrir alla sem vilja skemmta sér fallega í góðra vina hópi. Börn mega koma í fylgd með fullorðnum og mega vera inni til kl 23. Börn undir 12 ára fá frítt inn.

Alla fjóra dagana eru AA fundir haldnir í hádeginu á Hótel Hildibrand klukkan 12:05.

Boðið er upp á dagpassa og helgarpassa.

„Það er nóg pláss í Neskaupstað fyrir alla, er reyndar farið að fækka gistimöguleikum, þar sem hótelin og gistiheimilin eru farin að fyllast hratt. En það er alltaf nóg pláss á hátíðar tjaldstæðinu á Bökkum,” segja þær Magný og Helga Dóra.

Þær stöllur eru sammála um að fólkið sé það langbesta við Neskaupstað: „Við gætum ekki haldið þessa hátíð ár eftir ár ef það væri ekki fyrir allt þetta yndislega og hjálpsama fólk sem býr hér. Bærinn stendur við bakið á okkur og hjálpar til við skipulagningu og tekur á móti okkur opnum örmum.”

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Sagði Vilhjálmur prins þetta virkilega meðan heimsbyggðin horfði? – Varalesari fenginn í málið

Sagði Vilhjálmur prins þetta virkilega meðan heimsbyggðin horfði? – Varalesari fenginn í málið
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Hröð útbreiðsla Covid veldur Landspítalanum vandræðum

Hröð útbreiðsla Covid veldur Landspítalanum vandræðum
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Þessi tölfræði í tapi United í gær veldur áhyggjum – Sama vandamál og á síðustu leiktíð

Þessi tölfræði í tapi United í gær veldur áhyggjum – Sama vandamál og á síðustu leiktíð
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Flugdólgur með barn olli usla í vél Play

Flugdólgur með barn olli usla í vél Play
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Segja íslenskum fjölmiðlum að þegja og saka þá um falsfréttir

Segja íslenskum fjölmiðlum að þegja og saka þá um falsfréttir
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Gekk frá hatrömmum skilnaði degi fyrir andlátið

Gekk frá hatrömmum skilnaði degi fyrir andlátið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Handviss um að Casemiro fari ekki neitt

Handviss um að Casemiro fari ekki neitt
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband