Tónlistarkonan og snapparinn Camilla Rut Arnardóttir, eða Camy, gaf út sitt fyrsta lag í dag. Camy er mjög vinsæl bæði á Snapchat og Instagram, en um 17-20 þúsund fylgjast með henni þar daglega.
Lagið heitir Love Yourself eða Elskaðu sjálfa/n þig. Lagið fjallar eins og nafnið gefur til kynna um að við eigum að elska okkur nákvæmlega eins og við erum hverju sinni.
Camilla Rut er alin upp í Krossinum, en hún er barnabarn Gunnars Þorsteinssonar. Að eigin sögn segist hún hafa verið byrjuð að syngja áður en hún byrjaði að tala
Myndbandið við lagið er tekið upp á Íslandi og tökumaður er Grétar Örn.