fbpx
Föstudagur 07.febrúar 2025
Fréttir

Glæsilegt Minningarmót Birnu Norðdahl á Reykhólum

Jón L. Árnason og Lenka Ptáčníková báru sigur úr býtum

Kristín Clausen
Miðvikudaginn 24. ágúst 2016 00:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslandsmeistarinn Lenka Ptáčníková og stórmeistarinn Jón L. Árnason sigruðu á Minningarmóti Birnu Norðdahl á Reykhólum laugardaginn 20. ágúst. Keppendur komu hvaðanæva af landinu og var mikil stemmning í íþróttahúsinu þar sem mótið fór fram við frábærar aðstæður.

Í minningu Birnu E. Norðdahl

Mótið var haldið til að minnast Birnu E. Norðdahl (1919-2004) sem var brautryðjandi í kvennaskák á Íslandi. Birna var bóndi og listakona og fyrsta konan sem sögur fara af að hafi teflt á skákmóti hérlendis, árið 1940. Hún átti frumkvæði og allan heiður af því að íslensk kvennasveit fór í fyrsta skipti á Ólympíuskákmót, í Argentínu 1978.

Jóhann Hjartarsson, Hannes Hlífar Stefánsson og Jón L. Árnason. Með þeim á myndinni er Birna E. Norðdahl, barnabarn Birnu, en hún afhenti verðlaunin í mótinu.
Efstu menn Jóhann Hjartarsson, Hannes Hlífar Stefánsson og Jón L. Árnason. Með þeim á myndinni er Birna E. Norðdahl, barnabarn Birnu, en hún afhenti verðlaunin í mótinu.

Íslenskar landsliðskonur í skák voru heiðursgestir á mótinu á Reykhólum, og í þeim hópi voru skákkonur sem tefldu með Birnu á Ólympíumótum 1978 og 1980. Þetta var hluti af upphitun kvennalandsliðsins fyrir Ólympíumótið í Bakú sem hefst eftir hálfa aðra viku.

Svana Samúelsdóttir og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttur voru með Birnu E. Norðdahl í íslenska kvennalandsliðinu á sínum tíma.
Samherjar Svana Samúelsdóttir og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttur voru með Birnu E. Norðdahl í íslenska kvennalandsliðinu á sínum tíma.

Tefldar voru 8 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma og voru keppendur 37, þar af fjórir stórmeistarar. Í kvennaflokki urðu Lenka Ptáčníková og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir jafnar og efstar, en Lenka var hærri á stigum. Guðlaug Þorsteinsdóttir, sem varð fyrst kvenna Íslandsmeistari, árið 1975, hreppti bronsið, en jafnar í 4.-7. sæti urðu Hrund Hauksdóttir, Veronika Steinunn Magnúsdóttir, Áslaug Kristinsdóttir og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir. Þær Áslaug, Guðlaug og Sigurlaug voru allar í landsliðinu samtíða Birnu, rétt eins og Svana Samúelsdóttir, sem tók núna þátt í skákmóti eftir langt hlé.

Leiðir sveit Íslands

Í karlaflokki urðu Jón L. og Jóhann Hjartarson efstir og jafnir, en Jón var hærri á stigum. Í þriðja sæti varð Hannes Hlífar Stefánsson, sem mun leiða sveit Íslands á Ólympíumótinu í Bakú sem hefst núna í byrjun september.

Birna leikur fyrsta leikinn fyrir Hrund Hauksdóttur gegn Hannesi Hlífari Stefánssyni. Hannes Hlífar hafði sigur í skákinni.
Mótið hefst Birna leikur fyrsta leikinn fyrir Hrund Hauksdóttur gegn Hannesi Hlífari Stefánssyni. Hannes Hlífar hafði sigur í skákinni.

Hrund og Veronika fengu verðlaun fyrir bestan árangur 20 ára og yngri, og heimamaðurinn Guðjón D. Gunnarsson (betur þekktur sem Dalli) varð efstur skákmanna með 2000 skákstig eða minna.

Heimamaðurinn Guðjón D. Gunnarsson, betur þekktur sem Dalli, stóð sig best allra í mótinu með undir 2000 skákstig.
Heimamaður með verðlaun Heimamaðurinn Guðjón D. Gunnarsson, betur þekktur sem Dalli, stóð sig best allra í mótinu með undir 2000 skákstig.

Vegleg peningaverðlaun voru veitt á mótinu. Verðlaun í kvennaflokki voru ívið hærri en hjá körlunum, og er það algjör nýbreytni á skákmótum. Það var að frumkvæði Finns Árnasonar forstjóra Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, sem styrkti mótið með verulegu fjárframlagi. Auk þess tefldi Finnur á mótinu, þó að árangur hans þar hafi kannski ekki verið alveg í takti við peningaframlagið.

Fjölmenni við setningu mótsins

Fjölmenni var við setningu mótsins á Reykhólum í dag og ríkti afar góður andi á mótinu. Samhliða fór fram sýning á munum sem tengjast Birnu, bæði listaverk eftir hana og verðlaunagripir hennar af skákmótum, sem og myndir sem tengjast sögu íslenskra skákkvenna.

Hlynur Þór Magnússon flytur ávarp við setningu mótsins. Hann hafði frumkvæði að skákhátíðinni ásamt vopnabróður sínum, Hrafni Jökulssyni.
Frumkvöðull Hlynur Þór Magnússon flytur ávarp við setningu mótsins. Hann hafði frumkvæði að skákhátíðinni ásamt vopnabróður sínum, Hrafni Jökulssyni.

Við setningu mótsins flutti Hlynur Þór Magnússon sagnfræðingur á Reykhólum ávarp, en hann var frumkvöðull að mótinu og skipuleggjandi ásamt Skákfélaginu Hróknum. Setningarávarpið flutti Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitastjóri Reykhólahrepps, og svo lék Birna E. Norðdahl, barnabarn skákdrottningarinnar, fyrsta leikinn fyrir Hrund Hauksdóttur gegn Hannesi Hlífari.

Mótið var afar skemmtilegt og spennandi frá upphafi og leikgleðin í fyrirrúmi. Heimamenn á Reykhólum og fjölskylda Birnu tóku virkan þátt í hátíðinni og voru tvær dætur Birnu meðal keppenda, þær Indiana Svala Ólafsdóttir og Anna María Ólafsdóttir.

10 taflsett að gjöf

Í mótslok þakkaði Hrafn Jökulsson forseti Hróksins fjölskyldu Birnu, fólkinu á Reykhólum og í Reykhólahreppi, keppendum og bakhjörlum, en þó sérstaklega Hlyni Þór Magnússyni, fyrir frumkvæðið og frábært samstarf við skipulagningu hátíðarinnar.

Í tilefni af hátíðinni færðu Hrókurinn og Þörungaverksmiðjan grunnskólanum á Reykhólum 10 taflsett að gjöf, og munu Hróksmenn efna til skákdaga í skólanum í haust. Mikill skákáhugi er meðal barna og ungmenna á Reykhólum og tóku þau virkan þátt í hátíðinni.

Hrafn Jökulsson ásamt ungum meistara
Vígalegir Hrafn Jökulsson ásamt ungum meistara
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Alfreð átti að vera í nauðungarvistun þegar morðin voru framin

Alfreð átti að vera í nauðungarvistun þegar morðin voru framin
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Óveðrinu er sko ekki lokið: Rauðar viðvaranir taka aftur gildi

Óveðrinu er sko ekki lokið: Rauðar viðvaranir taka aftur gildi
Fréttir
Í gær

Sex manna hvolpasveit handtekin á Spáni

Sex manna hvolpasveit handtekin á Spáni
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir víða að störfum og Vellirnir á floti

Björgunarsveitir víða að störfum og Vellirnir á floti
Fréttir
Í gær

Miðbæjarbúar skiptast í fylkingar eftir viðtal Íslands í dag við Ólaf og Esther – „Komin út fyrir allan þjófabálk“

Miðbæjarbúar skiptast í fylkingar eftir viðtal Íslands í dag við Ólaf og Esther – „Komin út fyrir allan þjófabálk“
Fréttir
Í gær

Sakar Ingu Sæland um hótanir í garð sjávarútvegsins

Sakar Ingu Sæland um hótanir í garð sjávarútvegsins