Aron Snær Júlíusson úr GKG, Bjarki Pétursson úr GB og Gísli Sveinbergsson úr GK eru á meðal 144 keppenda á Evrópumóti áhugamanna. Mótið hefst á morgun miðvikudag og fer það fram á Royal Hague Golf & Country Club, í Hollandi.
Alls eru leiknar 72 holur á fjórum keppnisdögum og komast 60 efstu í gegnum niðurskurðinn að loknum þriðja keppnisdeginum.
Það er að miklu að keppa á þessu móti því sigurvegarinn fær keppnisrétt á Opna breska meistaramótinu sem fram fer á Carnousite í júlí á þessu ári.
Þetta er í 31. skipti sem mótið fer fram en það hefur ekki farið fram í Hollandi frá árinu 1986 þegar það fór fyrst fram.
Margir þekktir kylfingar hafa sigrað á þessu móti. Má þar nefna Rory McIlroy, Sergio Garcia, Victor Dubuisson og Stephen Gallacher.
Alfie Plant frá Englandi sigraði á þessu móti í fyrra þegar það fór fram á Walton Heath vellinum. Plant hafði þar betur í bráðabana gegn ítölsku kylfingunum Luca Cianchetti og Stefano Mazzoli. Cianchetti hafði titil að verja á þessu móti í fyrra. Plant lék því á Opna breska meistaramótinu í fyrra á Royal Birkdale þar sem hann stóð uppi sem sigurvegari í keppni áhugakylfinga – og fékk Silfurskjöldinn.
Royal Hague er einn af topp 5 völlum Evrópu og einn af 100 bestu golfvöllum heims. Þetta er strandvöllur og verða án efa krefjandi aðstæður fyrir keppendur.