Lögreglan hafði svo sannarlega í nógu að snúast á tónlistarhátíðin Secret Solstice í Laugardalnum í nótt. Alls hafði lögreglan afskipti af um þrjátíu einstaklingum en málin tengdust annað hvort fíkniefnum eða líkamsárásum. Þá var ölvuð kona handtekin eftir að hafa slegið lögreglumann. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Þar segir einnig frá konu í annarlegu ástandi sem handtekin var á slysadeild Landspítalans eftir að hún reyndi að bíta mann. Þá voru nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna ölvunar- eða fíkniefnaaksturs í kringum Laugardalinn.