Þórarinn Hafdal Hávarðsson verður 60 ára í febrúar 2022. Eins og títt er við slík tækifæri fá menn gjafir, og stundum gjafir sem meira er lagt í en aðrar.
Kona Þórarins, Lára Thorarensen og synir þeirra, Eiríkur Þór og Magnús, ásamt konum þeirra, Maju Benediktsdóttur og Ingu Sigríði Brynjólfsdóttur, ákváðu að gefa Þórarni stórafmælisgjöfina nokkuð fyrr, eða núna í vikunni.
„Málið er að hann hefur sérstakt dálæti á fornbílum og allt sem því tengist,“ segir Eiríkur. „Hann eignaðist fornbíl árið 2000, Chrysler NewYorker árgerð 1984. Hann varð síðan fyrir því óláni að honum var hreinlega stolið og bíllinn eyðilagður.“
Þeim bræðrum ásamt móður þeirra hafði lengi dreymt um að finna eins bíl og gefa honum. Bíllinn fannst síðan á dögunum á Akureyri og því var ekkert að vanbúnaði, „að kaupa bílinn og gefa gamla hann.“ Bræðurnir settu af stað söfnun og lögðu fjölskylda og vinir frjáls framlög í gjöfina. Síðan flugu þeir bræður til Akureyrar og keyptu bílinn.
Þórarinn var að vonum himinlifandi með gjöfina: „Þetta var einhver besti dagur sem ég hef upplifað,“ segir hann og er búinn að birta myndir af bílnum nýbónuðum og fínum á Facebooksíðu sinni.
„Endalausar þakkir til þeirra sem aðstoðuðu á einhvern hátt við þetta stönt. Söfnun var sett af stað og lögðu fjölskylda og vinir fram frjáls framlög í gjöfina,“ segir Eiríkur.
Myndbandið þegar Þórarinn fær gjöfina afhenta má sjá hér fyrir neðan. Sjón er sögu ríkari!