Kjóllinn, sem er bæði sumarlegur og í sérlega vinsælum lit þessa dagana, hentar bæði sem klæðnaður fyrir kjarkaða konu í sumarsólinni, en einnig sem partýkjóll fyrir kvöldið.
Daginn áður sást til hennar í mjög sérstakri flík sem virðist einhverskonar blanda af skyrtukjól og frakka. Við hann notaði hún fölgræna skó sem kom mjög vel út.
Hvaða erindi gamla kryddpían á í stórborgina vitum við ekki en eiginmaður hennar var á sama tíma spottaður í Tokyo sem er spes því auðvitað ætti hann að vera að fylgjast með okkur á HM.
Fyrir nokkrum vikum var hún svo mynduð í mjög fallegri grænni dragt/jakkafötum við hádegisverð sem var til styrktar góðgjörðarmála. Buxurnar eru skósíðar og útvíðar. Takið einnig eftir hvítu naglalakkinu og karlmannlegum hringnum sem hún ber á litla fingri.
Eiginmaðurinn með Louis Vuitton tösku á Tokyo flugvelli í gær. Hvað er hann að gera þar?