Það vita það flestir sem eiga börn á grunnskóla aldri hversu erfitt það getur verið að halda að þeim heimalestri þegar þau eru í fríi frá skólanum, hvort sem það er sumarfrí eða jólafrí. Það er eins og við vitum, mikilvægt að halda við þeirri færni sem þau hafa náð svo þeim fari ekki aftur í lestrinum.
Ég hef prufað allskona aðferðir til að halda þeim við efnið, en það sem hefur virkað best fyrir okkur er að vera með lestrar BINGO. Við byrjuðum á því eitthvert vorið þegar skólinn lét okkur hafa útprentað blað með reitum til að krossa í þegar barnið las heima og í sameiningu völdum við verðlaun við hæfi. Verðlaunin geta verið eitthvað sem barnið hefur gaman af. T.d. samverustundir með fjölskyldunni eins og bíóferð, fjöruferð, kósýkvöld, spilakvöld, sund eða keila. Svo er líka hægt að hafa eitthvað í verðlaun sem barninu vantar (og við foreldrarnir þurfum hvort eð er að kaupa) eins og t.d. fótboltahlífar, markmannshanskar, fótbolti, ballettskór, ballett búningur, fimleikabolur, ný úlpa, nýir skór eða hvað það sem barninu vantar þá stundina.
Svo má auðvitað skunda í dótabúðina og leyfa barninu að velja sér eitthvað fallegt 😉
Auðvitað velur hver fyrir sig.
En þar sem börnin mín fá ekki alltaf svona BINGO með sér í hvert sinn sem skólinn fer í frí, þá ákvað ég að búa til okkar eigið lestar BINGO og deila því með ykkur.
Hér kemur svo BINGOið og að sjálfsögðu er ykkur velkomið að prenta það út og deila því áfram. (Til að prenta það út, þarf að smella á myndina, hægri klikka á hana og vista hana á tölvunni ykkar)
Hægt er að fylgjast með Fríðu á Snapchat undir notandanafninu: fridabsandholt
Færslan birtist upphaflega á bloggsíðu Fríðu.