Avis bílaleiga
Nú eru skólar að byrja og veður tekur brátt á sig kaldari blæ. Á sumum heimilum er nauðsynlegt að hafa aukabíl yfir vetrartímann þar sem erfiðara getur verið að komast á milli staða vegna veðurs og meira er um skutl t.d. vegna ýmiskonar vetrartengdrar iðkunar barnanna. Avis bílaleiga býður áhugaverðan og hagstæðan kost til að uppfylla þessa þörf, þjónustu sem ber heitið Vetrarleiga. Hún hentar líka þeim vaxandi fjölda sem kýs heilsusamlegri lífsstíl á sumrin, fólki sem kýs frekar að hjóla, ganga eða nota strætó á þessum tíma árs og huga þannig að umhverfinu um leið. Það er dýrt að eiga gamlan bíl með tilheyrandi viðgerðarkostnaði en með Vetraleigu er sá kostnaður úr sögunni þar sem viðkomandi fær nýjan bíl að hausti þegar nýr samningur er gerður.
Í Vetrarleigu er aðeins ein mánaðarleg greiðsla þar sem allt nema bensín er innifalið. Innifalið í greiðslunni er meðal annars: Bifreiðagjöld, tryggingar, ástríðabundin dekkjaskipti, olíuskipti og allt hefðbundið viðhald.
Lendi leigutaki í tjóni fæst annar bíll samdægurs án aukagjalds. Fólk sleppur því við allar óvæntar og leiðinlegar uppákomur varðandi bílaeign og getur notað tíma sinn í eitthvað skemmtilegra en rekstur og viðhald bíla.
Með Vetrarleigu skapast frelsi til að einbeita sér að skemmtilegri hlutum en rekstri og viðhaldi bifreiða.
Í bílaflota Avis eru yfir 60 tegundir bíla og ættu því allir að geta fundið bíl við sitt hæfi.
avis.is og/eða í síma 591 4000.