Hlynur Þorsteinsson útskrifaðist þann 9. júní síðastliðinn sem leikari frá Listaháskóla Íslands.
Það skemmtilega við þá útskrift er að hann er fjórða kynslóð sinnar fjölskyldu til að stíga á fjalirnar. Faðir hans, Þorsteinn Guðmundsson, og móðir hans, Helga Stephensen, eru bæði leikarar, sem og faðir Helgu, Þorsteinn Ö. Stephensen, sem lést árið 1991.