fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025

RuPaul rifjar upp erfiða minningu: Segir Donald Trump hafa áreitt sig

Tómas Valgeirsson
Föstudaginn 1. júní 2018 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dragdrottningin og raunveruleikastjarnan RuPaul Charles hefur orðið fyrir kynferðislegu áreiti frá núverandi Bandaríkjaforseta, Donald Trump. Þetta segir hann í viðtali við Hollywood Inquirer og staðfestir að þetta hafi verið árið 1995 í frumsýningarteiti kvikmyndarinnar To Wong Foo, Thanks for Everything! Julie Newmar.

Samkvæmt RuPaul reyndi Trump að káfa á kynfærum dragdrottningarinnar, haldandi að hann væri kvenmaður, og hafi orðið æfur þegar RuPaul hafnaði honum.

„Ég var nýstiginn út af salerninu þegar Trump stökk á mig og kyssti mig,” segir RuPaul. „Hann fór að klípa í rassinn á mér og lyfti upp kjólnum til þess að grípa um klofið. Svo varð hann allt í einu afar reiður, byrjaði að öskra og bölva. Stuttu eftir það yfirgaf hann partíið.“

RuPaul er umsjónarmaður stórvinsælu raunveruleikaþáttanna RuPaul‘s Drag Race og má finna þá á Netflix. Um þessar mundir er stjarnan að undirbúa nýja þætti sem nefnast AJ and the Queen og verða þeir unnir í samstarfi við streymiveituna.

RuPaul er annar handritshöfundur þáttana og leikur dragdrottninguna Ruby Red sem ferðast um í húsbíl ásamt 11 ára, munaðarlausum dreng að nafni AJ og flakka þau á milli mismunandi staða þar sem Ruby stígur í sviðsljósið og dreifir jákvæða boðskap sínum hvert sem farið er.

Reiknað er með að þættirnir verði frumsýndir í byrjun næsta árs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Fordæma seinagang mennta- og barnamálaráðuneytisins

Fordæma seinagang mennta- og barnamálaráðuneytisins
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Bað menn um að „fela typpið“ þegar Michael Jackson kom í heimsókn

Bað menn um að „fela typpið“ þegar Michael Jackson kom í heimsókn
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Næsta stóra kynlífsáskorun Bonnie Blue – Er þetta líkamlega hægt?

Næsta stóra kynlífsáskorun Bonnie Blue – Er þetta líkamlega hægt?
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Sláandi tölfræði fær stuðningsmenn United til að tala

Sláandi tölfræði fær stuðningsmenn United til að tala
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Páll telur að enn eigi mikið eftir að gerast

Páll telur að enn eigi mikið eftir að gerast
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Evrópskir hermenn eiga að tryggja að Rússar ráðist ekki á ný á Úkraínu

Evrópskir hermenn eiga að tryggja að Rússar ráðist ekki á ný á Úkraínu
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum
Val Kilmer er látinn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.