Viðar Örn Kjartansson kemur inn í hópinn fyrir leikinn gegn Úkraínu
Viðar Örn Kjartansson og Hólmar Örn Eyjólfsson eru í landsliðshóp Íslands fyrir fyrsta leikinn í undankeppni HM í knattspyrnu. Heimir Hallgrímsson, sem nú er einn landsliðsþjálfari, kynnti sinn fyrsta hóp á blaðamannafundi sem enn stendur yfir þegar þetta er skrifað.
Tveir leikmenn sem voru í EM-hópnum í sumar komast ekki í fyrsta hóp Hemiis; þeir Eiður Smári Guðjohnsen og Hjörtur Hermannsson. Í þeirra stað koma Viðar Örn, sem hefur farið mikinn í Svíþjóð, og Hólmar Örn. Hjörtur mun spila með U-21 árs liðinu sem á leik á sama tíma.
Ísland leikur við Úkraínu, sem einnig var á EM, þann 5. september. Leikið verður ytra en engir áhorfendur verða á vellinum. Spilað verður fyrir tómu húsi.
Heimir var á fundinum spurður um stöðu Eiðs Smára. Fram kom að þeir hefðu ekki rætt saman en að allt væri opið í þeim efnum. Fyrir honum væri borin mikil virðing.
Heimir sagði á fundinum að mikilvægt væri að keyra áfram á styrkleikum liðsins og að það væri klárlega styrkleiki að leikmenn liðsins vissu hvernig liðið gæti unnið leiki.