Von er á fjölgun hjá söngkonunni Stefaníu Svavarsdóttur og Benjamín Náttmerði Árnasyni, gítarleikara og tónlistarkennara, en þau birtu stöðufærslu á Facebook þar sem þau tilkynntu um bumbubúann.
„Svo urðu þau sex. Kettinum er nokk sama og þverneitaði því að vera með á mynd en við fjögur erum að springa úr hamingju!“