Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson vakti athygli í haust þegar hann greindi frá áhyggjum af því að hann mundi deyja fyrir aldur fram vegna heilsufarskvilla. Hann sagði aukakílóunum stríð á hendur og það stríð virðist ganga ágætlega, ef marka má yfirlýsingu frá honum á Twitter. „Tíu kílómetrarnir voru teknir og étnir í kvöld,“ tísti Valdimar og bætti við að um nýtt „labbimet“ væri að ræða.