fbpx
Miðvikudagur 27.nóvember 2024
FókusKynning

Málningarvinna og heildstæð viðhaldsþjónusta

Kynning

Allt fyrir bílinn, Hyrjarhöfða 2

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 19. júlí 2016 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fyrir það fyrsta fá menn betra verð og hraðari þjónustu ef þeir eru með bílana sína í svona heildarþjónustu. Auk þess safnast upp þekking innanhúss á sömu ökutækjunum, menn þekkja bílana sem þeir eru að vinna við. Svo vita okkar viðskiptavinir að þegar þeir koma með bíl til okkar sem þarfnast smáviðgerða að þá er ekki verið að taka allt í nefið eins og sums staðar heldur er eingöngu gert við það sem þarf að gera við.“

Þetta segir Friðrik Vigfússon, annar eigenda fyrirtækisins Allt fyrir bílinn ehf., sem staðsett er að Hyrjarhöfða 2, 110 Reykjavík. Allt fyrir bílinn ehf. býður bíleigendum upp á heildarþjónustu þar sem gert er við allt sem gera þarf við og séð til þess að bílarnir séu alltaf í toppstandi. Viðskiptavinir Allt fyrir bíliln hafa hingað til mest verið fyrirtæki sem treysta því fyrir bílaflota sínum. Má þar nefna verkfræðistofuna Mannvit og innflutnings- og dreifingarfyrirtækið Bananar, auk margra fyrirtækja í ferðaþjónustu, til dæmis bílaleigur.

Það er glatt á hjalla á verkstæðinu
Það er glatt á hjalla á verkstæðinu

Málningarvinna hefur alltaf verið ríkur þáttur í starfsemi Allt fyrir bílinn ehf. en fyrirtækið er með samninga við öll tryggingarfyrirtækin um bílasprautun og málningu í tengslum við tjón. Auk þess er þetta þjónusta sem fyrirtæki með bílaflota nýta sér óspart

Nýjasti þátturinn í starfseminni er innflutningur á bílum; Allt fyrir bílinn flytur inn bæði nýja og notaða bíla í auknum mæli: „Við rekum ekki bílasölu sjálfir en flytjum inn fyrir aðra, gjarnan eftir pöntunum, til dæmis fyrir bílaleigur,“ segir Friðrik.

Fimm starfsmenn eru starfandi hjá Allt fyrir bílinn, bæði bifvélavirkjar og bílamálarar. Friðrik segir að það sé mjög mikið að gera og hafi farið mjög vaxandi í takt við aukinn uppgang og aukna bílaeign eftir að líða tók frá hruni. Ferðaþjónustufyrirtæki, til dæmis bílaleigur, koma þar sterk inn.

Þess má að lokum geta að Allt fyrir bílinn er með til sölu hina rómuðu hjólbarða, Infinity, sem eru bæðir afar vandaðir og seldir á hagstæðu verði.

Allt fyrir bílinn
Hyrjarhöfða 2, 110 Reykjavík
Símar: 554-4550 og 892-1667
Netfang: malningarverk@simnet.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Gaf Díegó í jólagjöf

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni