Jón Tómas og Vöruflutningar.is
„Ég er valkostur við Eimskip og Samskip um búslóðaflutninga milli Íslands og Skandinavíu og vöruflutninga innanlands. Stundum er ég allt að 40% ódýrari, stundum næ ég ekki að vera ódýrari, það fer allt eftir eðli verkefnanna hverju sinni. Hér er engin yfirbygging og þjónustan er hurð í hurð, það eru engin vöruhús, lyftarar eða starfsfólk á milli, sem sagt engir milliliðir, heldur flyt ég vöruna eða búslóðina upp að dyrum í hvert einasta skipti.“
Þetta segir Jón Tómas Ásmundsson, sem rekur flutningaþjónustu undir heitinu Vöruflutningar.is. Hann hefur starfað við vöruflutninga frá árinu 1993 og kveður þar mest að reglulegum vöruflutningum milli Reykjavíkur og Akureyrar sem fara fram tvisvar í hverri viku.
En síðustu fimm ár hafa búslóðaflutningar milli Íslands og Norðurlandanna verið mjög fyrirferðarmiklir. Jón segist raunar líka hafa flutt búslóðir til Spánar og er hann opinn fyrir flutningum hvert sem er, en langmest kveður að Skandinavíu-flutningunum. Flutningabílunum er þá ekið til Seyðisfjarðar þar sem þeir fara um borð í Norrænu. Túrinn tekur allt í allt tvær vikur.
Jón Tómas segir marga veigra sér við að nýta sér þjónustu hans þar sem þeir finni meira öryggi í því að skipta við þekkt fyrirtæki eins og Eimskip og Samskip. Reynslan og orðsporið vinni hins vegar alltaf með honum og þeir sem hafi einu sinni átt viðskipti við hann mæli nær alltaf með honum við aðra. Einfaldur rekstur og engin yfirbygging gera honum kleift að bjóða oft mun betra verð en stóru flutningafélögin.
„Ég er með þrjá flutningabíla í eigin eigu en ég kalla alltaf til mín samstarfsaðila fyrir stærri verkefni. Ég er í samstarfi við nokkra félaga sem sinna vöruflutningum eins og ég en ég er sá eini þeirra sem er í búslóðaflutningum milli Íslands og Norðurlandanna. En ég get einfaldlega tekið það með mér sem hentar hverju sinni og ef ég er búinn að fylla mína bíla hef ég einfaldlega samband við félagana.“
Að sögn Jóns Tómasar er um 95% af innlendri starfsemi hans vöruflutningar og 95% af starfsemi hans búslóðaflutningar milli landa. Hann er hins vegar alltaf opinn fyrir annars konar verkefnum og gerir sér far um að bjóða ávallt mjög samkeppnisfært og hagstætt verð.
Nánari upplýsingar um þjónustuna veitir Jón Tómas í síma 8962063 en einnig er áhugavert að skoða heimasíðuna voruflutningar.is og Facebook-hópinn Jón Tómas Flutningar- Ísland Noregur- Noregur Ísland, til að fá upplýsingar um þjónustuna.