„Það er mikilvægt að barnið sitji rétt í sjalinu, með mjaðmirnar í M, þá er barnið með lappirnar utan um þann fullorðna, hnén eru bogin og þyngdin er á rassinum. Það er til að barnið hangi ekki á mjöðmunum, ef það gerist þá getur það valdið mjaðmalosi.“
„Sjölin eru þannig að þú klæðir þig í þau, en þarft ekki að vefja þeim marga hringi utan um þig. Þau eru í nokkrum stærðum og er hún valin út frá fatastærð foreldris eða þeirrar manneskju sem mun bera barnið. Stærð og þyngd barnsins er ekki áhrifavaldur í stærðarvali.“
Barnið snýr að þeim fullorðna í sjalinu, finnur hjartslátt hans og jafnar sinn eigin um leið og situr kúpt í baki sem er besta staðan fyrir barnið. „Þegar barnið snýr fram þá er sú stelling óhollari fyrir það. Þegar barnið verður eldra þá getur það hins vegar farið að snúa fram í smá tíma.“
„Ef barnið kallar mikið á að vera á handlegg þá er mikill kostur að geta verið með það í sjalinu, þá er maður með barnið hjá sér, en á sama tíma með hendurnar lausar. Og þar sem að sjalið dreifir þyngdinni á bak og báðar axlir þá er þetta ekki jafn erfitt líkamlega eins og að halda þeim á mjöðm.“
Sjölin duga fyrir börn upp að 16 kg og eru í tveimur gerðum: orginal sem er bómull út í gegn og breeze, sem er einnig úr bómull, en helmingur lykkjunnar er úr gataðri bómull þannig að efnið andar meira. Hentar það því betur ef foreldri og/eða barn er heitfengt. Sjölin eru í fjórum litum: svörtu, gráu, bláu og fjólubláu.
Baby K‘tan vörurnar eru seldar á heimasíðunni babyktan.is, lucina.is, í Móðurást og í Litli gleðigjafinn á Akureyri.
Á vefsíðunni Lucina.is og Facebook-síðu með sama nafni eru til sölu ýmsar vörur sem henta vel fyrir barn og foreldri, til dæmis eru Baby K‘tan skiptitöskur á leið til landsins sem eru nýstárlegar um leið og þær eru praktískar og fallegar. „Í þeim er fullt af hólfum, eitt stórt kælihólf og hólf fyrir fartölvu, þannig að ein taska dugar fyrir allt sem þarf.“ Skiptitöskurnar verða líka á Baby K‘tan-síðunni og mögulega í verslunum.
Einnig eru hreinsiskífur fyrir andlit til sölu, „þær eru stórar og skolast vel úr þeim, ég byrja á að þrífa augun, skola síðan og þríf andlitið. Þetta er algjör snilld,“ segir Júlíana, en hreinsiskífurnar eru mjög hentugar fyrir þá sem vilja hugsa um umhverfið jafnt og húðina.
Nánar má skoða vöruúrvalið á heimasíðunni lucina.is