Hlutirnir eru mjög fljótir að breytast í fótboltanum en það ættu flestir aðdáendur að vita.
Líf leikmanna getur breyst á einni nóttu og eru til frábær dæmi um menn sem hafa fimmfaldað laun sín með einni frammistöðu.
Jamie Vardy er gott dæmi um leikmann sem kom sér í hóp þeirra bestu með því að spila vel fyrir Leicester City, ekki löngu eftir að hafa verið í utandeildinni á Englandi.
Harry Kane er dæmi um annan leikmann sem var lítið þekktur áður en hann fékk óvænt tækifæri með aðalliði Tottenham og stóð sig vel.
Skemmtileg mynd af Kane og Vardy er nú að vekja athygli þar sem má sjá þá báða á varamannabekk Leicester árið 2013.
Fyrir aðeins fimm árum voru þeir félagar saman á bekknum hjá Leicester en Kane var í láni hjá félaginu frá Tottenham.