„Jæja. Hvor ykkar apakattanna var að fara með dósir?“ spyr Baggalúturinn, Bragi Valdimar Skúlason þá Ara Eldjárn uppistandara og Guðmund Pálsson Baggalút.
Tilefnið er vísun í frétt Séð og Heyrt þess efnis að Bragi hafi farið með flöskur í Sorpu rétt fyrir lokun síðastliðinn föstudag en Bragi kannast þó sjálfur ekki við það að hafa heimsótt endurvinnsluna.
Svo virðist sem margir geti tekið feil á þeim þremur enda var Bragi með það á hreinu að annar hvor þeirra hlyti að hafa farið í sinn stað. Ari Eldjárn var fljótur að taka á sig sökina en Bragi grípur boltann á lofti og segir föður sinn verða sjötugan í haust og fyrirhuguð séu veisluhöld. „Geturðu mætt í staðinn fyrir mig?“ spyr hann vongóður.