Það var Mustang klúbburinn á Íslandi sem stóð fyrir þessari flottu sýningu en sýndir voru rúmlega 20 bílar.
Eins og sjá má á þessum myndum var vel mætt og áhugasamir á öllum aldri, bæði karlar og konur þó karlar hafi verið í svolitlum meirihluta.
Mustang hefur lengi verið á topp tíu listanum yfir mestu töffarabíla jarðar og í sérstöku uppáhaldi eru eldri týpurnar.