KG Sendibílar er lítið flutningafyrirtæki sem þó sinnir fjölbreyttum og umfangsmiklum flutningum. Fyrirtækið er staðsett á Akureyri og sinnir jöfnum höndum búslóðaflutningum fyrir bæjarbúa og verkefnum fyrir fyrirtæki. KG Sendibílar annast flutninga fyrir fólk og fyrirtæki hvert á land sem er, ef á þarf að halda, og mörg dæmi eru um að fyrirtækið flytji til dæmis búslóðir milli Reykjavíkur og Akureyrar. KG Sendibílar eru í eigu feðganna Kristjáns Gunnþórssonar og Gunnþórs Kristjánssonar og hefur verið starfandi í áratugi:
„Pabbi er búinn að vera í þessu síðan 1968. Þetta er að smella í hálfa öld og hann er enn að, karlinn, orðinn 71 árs,“ segir Gunnþór Kristjánsson en hann og faðir hans sjá um allan akstur fyrirtækisins, en bæta við afleysingabílstjórum ef þeir fara í frí:
„Við erum aldrei báðir í fríi á sama tíma,“ segir Gunnþór en þeir feðgar vinna á öllum tímum, bara eftir þörfum hverju sinni: „Við erum á vaktinni allan sólarhringinn og það er ekkert heilagt í þeim efnum.“
KG Sendibílar hafa til umráða einn stóran vöruflutningabíl, kassabíl af gerðinni Mercedes Benz, með vörulyftu, og síðan sendibíl. Vegna vaxandi umsvifa stefna þeir á að kaupa þriðja bílinn og ráða bílstjóra.
Sem fyrr segir sinna KG Sendibílar margvíslegri þjónustu fyrir fyrirtæki auk búslóðaflutninga og annarrar flutningaþjónustu fyrir heimili og einstaklinga:
„Við dreifum til dæmi grænmeti fyrir Mata í alla skóla og leikskóla á Akureyri og á veitingastaði í bænum. Í grænmetisflutningana notum við sendibílinn. Síðan notum við kassabílinn og vörulyftuna í þjónustu við Eimskip á Akureyri sem við dreifum vörum fyrir. Enn fremur dreifum við öllu fyrir Svefn og heilsu Akureyri, Húsgagnahöllina á Akureyri og Rúmfatalagerinn Akureyri,“ segir Gunnþór.
KG Sendibílar sinna öllum beiðnum um flutninga þrátt fyrir annir og þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þjónustu fyrirtækisins, hvort sem það eru einstaklingar eða fyrirtæki, geta haft samband í síma 892 3033 eða sent fyrirspurn á netfangið kgsendibilar@internet.is