Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson hefur nú gefið út og tekið upp myndband fyrir lagið „Þegar ég sá þig fyrst“. Hann samdi og tók upp lagið fyrir 15 árum, brenndi á disk og gaf verðandi eiginkonu sinni, Hafdísi Björk Jónsdóttur, í jólagjöf.
Síðan lá lagið í dvala uns Jón og Hafdís giftu sig í júlí á þessu ári en þá tók hann upp gítarinn og flutti lagið í athöfninni. Lagið er nú aðgengilegt á Youtube og Spotify.