Stærsti sýningarsalur landsins með notaða bíla
Bílasalan Planið er staðsett á Korputorgi skammt út frá Vesturlandsveginum. Stórt og mikið plan er fyrir utan bílasöluna, auk þess sem boðið er upp á glæsilegan sýningarsal sem er sá stærsti á landinu með notaða bíla og því vinsæll viðkomustaður hjá þeim sem eru að spá í að kaupa sér bíl eða önnur farartæki. Þar má sjá afar fjölbreytt úrval af nýjum og notuðum bílum, ferðavögnum, hjólhýsum, vélsleðum, fjórhjólum og margs konar öðrum farartækjum.
„Viðskiptavinir geta vænst þess að finna það sem þeir leita að hjá Planinu og ef það er ekki til staðar útvega starfsmenn það.“ segir Ásgeir Ásmundsson, sölumaður hjá Planinu.
„Það er búið að vera brjálað að gera undanfarnar vikur og mánuði. Mikil hreyfing er á markaðnum og salan hjá okkur verið mjög góð. Í raun er okkur farið að vanta bíla á skrá hjá okkur.“ segir Ásgeir
„Það kostar ekkert að skrá bílinn á sölu hjá okkur. Við leitum eftir öllum gerðum af bílum, húsbílum, tjaldvögnum og hjólhýsum á skrá. Hægt er að koma við hjá okkur og skrá gripinn á sölu. Einnig er hægt að skrá bílinn á heimasíðunni okkar www.planid.is og senda svo myndir á netfangið planid@planid.is. Sem stendur höfum við laust pláss í sýningarsalnum okkar bæði fyrir bíla og hýsi.“
Sýningarsalurinn á Korputorgi er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10 til 18, föstudaga 10 til 17 og laugardaga frá kl. 12 til 16.
Hér má sjá nokkrar myndir af bílum og tækjum sem Planið er með í sölu